Til baka í fundargerðir
Auglýsingaskilti (LED) við Breiðablik. Kvörtun
Málsnúmer: 1705018
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2871. fundur
Frá byggingafulltrúa, dags. 16. maí, lögð fram umsögn í tilefni af kvörtun út af LED skilti sem sett hefur verið upp við Breiðablik og bæjarráð vísaði til umsagnar byggingafulltrúa.
Lagt fram.
Bókun:
"Ég tel mikilvægt að við umfjöllun sína taki skipulagsráð heildstæða umræðu um auglýsingaskilti í bænum, þ.m.t. fjölda, gerð, staðsetningu, og áhrif á nær umhverfi, s.s. sjónræna mengun, birtu, áhrif á umferð, íbúa ofl.
Ólafur Þór Gunnarsson"
02
Bæjarráð - 2869. fundur
Frá Steen Henriksen, dags. 28. apríl, lögð fram kvörtun út af LED skilti sem sett hefur verið upp við Breiðablik þar sem farið er fram á að skiltið verði fjarlægt.
Bæjarráð vísar málinu til byggingarfulltrúa til umsagnar.