Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Reitir í þéttbýli Kópavogs án deiliskipulags.

Málsnúmer: 1705024

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 10. fundur

Á fundi bæjarráðs 4. maí 2017 var lögð fram fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni bæjarfulltrúa, þar sem óskað er eftir upplýsingum um þá reiti í Kópavogi sem eru án deiliskipulags. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvort til standi að gera deiliskipulag fyrir þá reiti og hvaða tímamörk menn hafa sett sér í því efni. Var fyrirspurnunum vísað til umsagnar skipulagsstjóra. Á fundi bæjarráðs 1. júní 2017 var lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 17. maí 2017. Var henni vísað til umfjöllunar skipulagsráðs.

Lagt fram og kynnt.

02

Bæjarráð - 2872. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 17. maí, lagt fram svar við fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni bæjarfulltrúa þar sem óskað var eftir upplýsingum um reiti í Kópavogi sem eru án deiliskipulags.

Lagt fram.

Ólafur Þór Gunnarsson þakkar framlagt svar.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði til að umsögninni verði vísað til skipulagsráðs til umfjöllunar.

03

Bæjarráð - 2869. fundur

Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni til sviðsstjóra umhverfissviðs: "Undirritaður óskar eftir upplýsingum um þá reiti í þéttbýli í Kópavogi sem eru án deiliskipulags. Jafnframt er óskað eftir upplysingum um hvort til standi að gera deiliskipulag fyrir þá reiti og hvaða tímamörk menn hafa sett sér í því efni."

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar Skipulagsstjóra.