Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi hjólreiðaáætlun og uppbyggingu hjólreiðastíga
Málsnúmer: 17051881
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2872. fundur
Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa.
Hver er staðan á hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar og uppbyggingu hjólreiðastíga?
Mikilvægi vistvænna samgangna eykst sífellt og eigi Íslendingar að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum þurfa allir opinberir aðilar og almenningur að leggja sitt af mörkum. Hjólreiðar verða sífellt stærri þáttur í daglegum samgöngum, einkum í þéttbýli, og því mikilvægt að áætlunum sé fylgt og þær gerðar. Sérstakir hjólreiðastígar eru enn sem komið er á örfáum stöðum í Kópavogi.
Lagt fram.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Síðan 1990 hafa verið lagðir u.þ.b. 100 km. af stígum í Kópavogi sem nýtast bæði fyrir hjólandi og gangandi.
Ármann Kr. Ólafsson"