Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór 12, Kórinn. Prikið ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer: 1705568

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2871. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 11. maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 9. maí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Priksins ehf., kt. 711003-2070, um tímabundið áfengisleyfi vegna tónleika Rammstein laugardaginn 20. maí 2017, frá kl. 15:00-03:00, í Kórnum íþróttahúsi, að Vallakór 12, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.