Til baka í fundargerðir
Hagasmári 1. Fridays, Tankurinn ehf. Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar rekstrarleyfis
Málsnúmer: 1705620
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2872. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 24. maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10. maí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tanksins ehf., kt. 571299-5349, um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hagasmára 1, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.