Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vegna breytingar á A deild Brúar lífeyrissjóðs vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins nr. 1/1997

Málsnúmer: 1706353

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2903. fundur

Frá fjármálastjóra, lögð fram drög að samningi við Brú lífeyrissjóð um uppgjör. Bæjarstjórn vísaði erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu á síðasta fundi sínum, þann 13. febrúar.

Bæjarráð samþykkir samkomulag við Brú lífeyrissjóð um uppgjör lífeyrisskuldbindinga með fimm atkvæðum.

02

Bæjarstjórn - 1170. fundur

Frá fjármálastjóra, dags. 5. febrúar, lögð fram tillaga um fjármögnun lífeyrisskuldbindingar við Brú lífeyrissjóð.

Lagður fram viðauki I við fjárhagsáætlun Kópavogs 2018. Einnig lagt fram erindi frá reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga dags. 8. febrúar sl. Þá voru lögð fram drög að samkomulagi við Brú lífeyrissjóð um uppgjör lífeyrisskuldbindinga.

Hlé var gert á fundi kl. 18:03. Fundi var fram haldið kl. 18:08.

Kópavogsbær samþykkir með 11 atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að 2.040.000.000 kr. Fyrirhugað er að taka 1.000.000.000 kr í lánaflokki LS-34, sem nú ber 2,55% fasta verðtryggða vexti, en afganginn sem óverðtryggt lán með 6 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 0,5% álagi (gerir nú 5,15%). Einnig er óskað eftir heimild til að taka skammtíma "brúarlán" sem ber 4,75% óverðtryggða vexti sem verður greitt upp með endanlegri lántöku.

Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Eru lánin tekin til að greiða lífeyrisskuldbindingu við Brú lífeyrissjóð, sem er á gjalddaga þann 31. janúar 2018, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni kt: 170766-5049, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Þá samþykkir bæjarstjórn með 11 atkvæðum viðauka I við fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2018.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa drögum að samkomulagi við Brú lífeyrissjóð um uppgjör lífeyrisskuldbindinga til bæjarráðs til afgreiðslu.

03

Bæjarráð - 2902. fundur

Frá fjármálastjóra, dags. 5. febrúar, lögð fram tillaga um fjármögnun lífeyrisskuldbindingar við Brú lífeyrissjóð.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Bæjarráð lýsir vanþóknun sinni á þeim skamma tímafresti sem veittur er til uppgjörs enda um háar fjárhæðir að ræða. Bæjarráð telur eðlilegt að gjalddagi verði færður til 1. mars.