Beint í efni
Til baka í fundargerðir

HK-blakdeild, umsókn um æfingatíma í Fagralundi 2017 - 2018

Málsnúmer: 1706559

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 74. fundur

Lagt fram erindi/rökstuðningur frá blakdeild HK, sem barst að loknum síðasta fundi ráðsins, en þar óskar deildin eftir æfingatímum milli 21:00 - 22:00 á virkum dögum í Fagralundi fyrir blakdeildina og að leigugjöld vegna þessara æfingatíma verði aflögð.

Íþróttaráð fagnar því að öflugt barna- og unglingastarf deildarinnar beri þann ávöxt sem raun ber vitni og samþykkir beiðni deildarinnar um æfingatíma milli 21:00 og 22:00 þrjú kvöld vikunnar.

Félaginu stendur einnig til boða að nýta tíma á laugardögum og sunnudögum í íþróttahúsi Kársnesskóla.