Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Endurnýjun samninga við Tennisfélag Kópavogs vegna stækkunnar Tennishallar Dalsmára 13

Málsnúmer: 1706582

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2877. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 20. júní, lögð fram drög að endurnýjuðum samningi við Tennisfélag Kópavogs vegna fyrirhugaðrar stækkunnar á Tennishöllinni. Óskað er eftir heimild til að ganga frá samningi á grundvelli meðfylgjandi samningsdraga. Bæjarstjórn vísaði erindinu aftur til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu á fundi sínum þann 27. júní síðastliðinn.

Bæjarráð samþykkir framlögð samningsdrög með fimm atkvæðum.

02

Bæjarstjórn - 1160. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 20. júní, lögð fram drög að endurnýjuðum samningi við Tennisfélag Kópavogs vegna fyrirhugaðrar stækkunnar á Tennishöllinni. Óskað er eftir heimild til að ganga frá samningi á grundvelli meðfylgjandi samningsdraga.

Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Óska eftir að samningur við Tennisfélag Kópavogs verði vísað til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu og þar verði endurskoðuð þau ákvæði sem snúa að 4. grein er varðar endurskoðun og ákvæði í 7. grein er varðar gildistíma. Þá verði uppsagnarákvæði samningsins samkvæmt 7. grein ennig yfirfarin.

Sverrir Óskarsson"

Tillaga Sverris Óskarssonar var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum þeirra Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sverris Óskarssonar, Birkis Jóns Jónssonar og Ólafs Þórs Gunnarssonar en Karen Halldórsdóttur, Guðmundur Geirdal, Ása Richardsdóttir og Kristín Sævarsdóttir greiddu ekki atkvæði.

03

Bæjarráð - 2875. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 20. júní, lögð fram drög að endurnýjuðum samningi við Tennisfélag Kópavogs vegna fyrirhugaðrar stækkunnar á Tennishöllinni. Óskað er eftir heimild til að ganga frá samningi á grundvelli meðfylgjandi samningsdraga.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.