Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni og Kristínu Sævarsdóttur um að kannaður verði kostnaður við námsgögn barna í grunnskóla í Kópavogi
Málsnúmer: 1707116
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2880. fundur
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 2. ágúst, lagt fram minnisblað um kostnað vegna kaupa á námsgögnum fyrir nemendur í grunnskólum Kópavogs.
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni : Bæjarráð Kópavogs samþykkir að greiða kostnað vegna námsgagna grunnskólabarna skólaárið 2017-2018, sbr. nýlega samantekt menntasviðs á kostnaði þar að lútandi. Þar sem gera má ráð fyrir að foreldrar margra barna hafi þegar lagt út fyrir kostnaði er menntasviði falið að gera tillögur um hvernig hægt verði fyrir komandi skólaár að endurgreiða kostnað sem svarar að hámarki 5000 kr fyrir 1.-4. bekk og 3500 fyrir 5.-10. bekk, eins og kemur fram í svari menntasviðs.
Greinargerð. Mörg sveitarfélög hafa farið þá leið að undanförnu að jafna aðstöðu barna til náms m.þ.a. standa straum af kostnaði vegna námsgagna, þ.m.t. ritfanga o.þ.h. að fullu. Kópavogsbær má ekki vera eftirbátur annarra sveitarfélaga hvað þetta varðar og því mikilvægt að tillagan verði samþykkt. Þ.s. ætla má að foreldrar hafi þegar keypt inn námsgögn, eða hluta námsgagna err menntasviði falið að útfæra þá aðferð sem notuð verður til að endurgreiða þennan kostnað fyrir þetta skólaár. Jöfnuður og réttlæti snúast um að gera það strax sem er hægt til að jafna aðstöðu barna. Að bíða er að neita börnum um jöfnuð.
Fundarhlé hófst kl. 09:08. Fundi aftur framhaldið kl. 09:13
Lögð fram bókun frá Hjördísi Ýr Johnson, Karen Elísabetu Halldórsdóttur og Hreiðari Oddssyni.
Samþykkt var af öllum bæjarfulltrúum Kópavogsbæjar tillögu þess efnis að grunnskólar bæjarins fari í aðgerðir við að lækka ritfangakostnað. Í samvinnu við foreldrafélögin hefur tekist að lækka kostnað við námsgögn umtalsvert en miðað hefur verið við að kostnaður vegna hvers nemanda verði ekki hærri en 4.000 kr. á skólaárinu 2017-2018. Kópavogsbær hefur lagt út ríflega 300 milljónir til spjaldtölvuvæðingar grunnskóla bæði kennara og nemenda sem er í takt við stefnu bæjarins um jafnrétti til náms og vistvænni rekstur skólanna.
Þess má einnig geta að Menntaráð samþykkti á síðasta fundi sínum þann 15.08.2017 að taka til umræðu um gjaldfrjálsan grunnskóla við gerð næstu fjárhagsáætlunar sem samþykkt var með fimm atkvæðum meirihluta gegn tveimur atkvæðum minnihluta.
Fundarhlé gert kl. 09:15. Fundi framhaldið kl. 09:20.
Kópavogsbær er í ágætum færum til að jafna aðstöðumun barna. Því má ekki fresta. Ólafur Þór Gunnarsson, Kristín Sævarsdóttir,
Kristinn Dagur Gissurarson.
02
Bæjarráð - 2879. fundur
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 2. ágúst, lagt fram minnisblað um kostnað vegna kaupa á námsgögnum fyrir nemendur í grunnskólum Kópavogs.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirritaður þakkar svörin. Svörin benda til að kostnaður við þessa breytingu sé slíkur að bærinn ætti að taka hann til sín. Kópavogsbær á að taka þetta skref í átt að gjaldfjálsum grunnskóla.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Fundarhlé hófst kl. 8.57. Fundi fram haldið kl. 9.07.
Bókun Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Margrétar Friðriksdóttur, Hjördísar Ýr Johnson og Ármanns Kr. Ólafssonar:
"Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs 13. júní sl. var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga þess efnis að grunnskólarnir fari í aðgerðir til að lækka ritfangakostnað og að miðað verði við að kostnaður vegna hvers nemanda verði ekki hærri en 4000 kr. á næsta skólaári 2017-2018. Þessar breytingar á innkaupum teljum við mikilvægt skref til að lækka ritfangakostnað fjölskyldna sem og til að auka nýtni og draga úr sóun í samræmi við áherslur í umhverfismálum. Þá hefur innleiðing spjaldtölva verið mikilvægur þáttur í að tryggja jafnræði meðal barna auk þess að draga úr kostnaði við námsgögn."
Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar:
"Öll skref í þá átt að gera grunnskólann gjaldfrjálsan eru jákvæð."
Bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar:
"Undirritaður beinir því til bæjarstjóra að sjá til þess að stjórnendur allra grunnskóla fari eftir ákvörðun bæjarstjórnar, en svo virðist sem misbrestur sé þar á."
Bókun Birkis Jóns Jónsonar:
"Ég árétta bókun mína frá bæjarstjórnarfundi þann 13. júní sl.
"Ég fagna tillögu menntaráðs um að lækka ritfangakostnað fjölskyldna vegna skólagöngu grunnskólanema. Mikilvægt er að grunnskólar skipuleggi sameiginleg innkaup í samstarfi við foreldra. Hins vegar tel ég að þessi námsgögn eigi að vera grunnskólanemum gjaldfrjáls. Grunnskólar í Kópavogi ættu því að útvega öll þau gögn sem nauðsynlegt er að nemendur hafi tiltæk vegna náms, hvort sem það eru pappír, ritföng eða annað. Við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar árið 2018 þarf að tryggja fjármuni vegna þessa. Birkir Jón Jónsson""
Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:
"Ég minni á að allir viðbótarkostnaður grunnskólanna er tekinn af skattfé frá íbúum Kópavogs."
03
Bæjarráð - 2877. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa:
"Bæjarráð samþykkir að fela menntasviði að kanna kostnað við að greiða allan kostnað við námsgögn barna í grunnskóla í Kópavogi. Kostnaðurinn verði flokkaður niður eftir árgöngum."
Greinargerð;
Að undanförnu hefur verið mikil umræða um kostnað vegna skólagöngu barna og nokkur stór sveitarfélög stigið það skref að gera grunnskólann gjaldfrjálsann með öllu. Það er mikilvægt að bæjarstjórn Kópavogs hafi glöggar upplýsingar um væntanlegan kostnað af slíku ef af yrði. Kostnaður við nám getur verið hindrun við fulla þátttöku barna í skólastarfi og mikilvægt að bærinn leiti allra leiða til að koma í veg fyrir slíkt. Mikilvægt er að upplýsingarnar liggi fyrir áður en skólastarf hefst í haust þannig að hægt verði að gera ráðstafanir af hálfu bæjarins m.t.t. kostnaðar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.