Fráveitur á höfuðborgarsvæðinu
Málsnúmer: 1707117
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2878. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 21. júlí, lagt fram minnisblað um fráveitur á höfuðborgarsvæðinu vegna sýnatöku sem tekin var af strandlengjunni í Kópavogi þann 13. júlí sl.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2877. fundur
Guðmundur H Einarsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mætti á fundinn.
Bæjarráð bókar eftirfarandi:
"Samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fundinum er ekki ástæða til að ætla að bilun í hreinsibúnaði hreinsistöðvar í Faxaskjóli hafi haft áhrif á strandlengju bæjarins. Engu að síður óskar bæjarráð eftir því að árleg sumarmæling heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fari fram strax. Bæjarráð telur mikilvægt að upplýsingagjöf stofnana sem sjá um umhverfisvöktun sé með markvissum hætti"