Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendi, ill umgengni bústaða.

Málsnúmer: 1708051

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 104. fundur

Skipulagsráð 38 - 5.11.2018

Ástand og umgengni við marga sumarbústaði sunnan Elliðavatns er verulega ábótavant. Umræddir bústaðir eru í umsjá ábúanda Vatnsendabýlisins. Ljóst er að ekki verður við það búið öllu lengur að ráðast í tiltekt á svæðinu. Skipulagsráð vísar málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

Lagt fram erindi Hallgríms Magnússonar varðandi ílla umgengni við bústaðarústir við Elliðavatn dags. 13. september 2017.

Ástand og umgengni við marga sumarbústaði sunnan Elliðavatns er verulega ábótavant. Umræddir bústaðir eru í umsjá ábúanda Vatnsendabýlisins. Ljóst er að ekki verður við það búið öllu lengur að ráðast í tiltekt á svæðinu. Skipulagsráð vísaði málinu til umhverfis- og samgöngunefndar 5. nóvember 2018 til úrvinnslu. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fela umhverfisfulltrúa að boða til samráðsfundar landeiganda, byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirliti til að móta tillögur um úrbætur. Verði tillögurnar lagðar fyrir næsta fund nefndarinnar.

02

Skipulagsráð - 38. fundur

Lagðar fram myndir af ástandi gamalla sumarbústaða sunnan Elliðavatns. Eru myndirnar teknar 31. október 2018.