Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Turnahvarf 8. Óskað eftir breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi

Málsnúmer: 17091058

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 27. fundur

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa Turnahvarfs 8 dags. 25. september 2017. Í fyrirspurninni er óskað eftir breytingu á aðal- og deiliskipulagi lóðarinnar þannig að byggja megi á lóðinni "litlar og hagkvæmar íbúðir fyrir fyrstu kaupendur".

Lögð fram umsögn skipulagstjóra dags. 12. apríl 2018.

Skipulagsráð tekur undir niðustöðu umsagnar skipulagstjóra dags. 12. apríl 2018 þar sem lagt er til að aðal- og deiliskipulagi á umræddri lóð verði ekki breytt.

02

Skipulagsráð - 16. fundur

Lögð fram fyrirspurn Vigurs fjárfestingar ehf. dags. 25. september 2017 varðandi breytingu á aðal- og deiliskipulagi á lóðinni nr. 8 við Turnahvarf.

Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.