Til baka í fundargerðir
Ennishvarf 6. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1709251
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 14. fundur
Lagt fram erindi Einars Tryggvasonar dags. 1. september 2017 fyrir hönd lóðarhafa Ennishvarfs 6 þar sem óskað er eftir heimild til að stækka til suðurs núverandi hesthús á lóðinni, samtals 49,3 m2 . Auk þess er óskað eftir stækkun lóðar við norðausturhluta hennar um 96,1 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 ásamt greinargerð dags. 2. ágúst 2017.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Ennishvarfs 4 og 8 og Brekkuhvarfs 17.