Deiliskipulag fyrir Háveg, Álftröð og Skólatröð. Áskorun frá íbúum við Álfhólsveg, Skólatröð, Hátröð, Neðstutröð og Vallatröð um þéttingu byggðar
Málsnúmer: 1709263
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 15. fundur
Á fundi bæjarráðs 21. september 2017 var lagt fram og vísað til úrvinnslu skipulagsráðs erindi frá íbúm við Álfhólsveg, Skólatröð, Hátröð, Neðstutröð og Vallartröð, þar sem fram kemur áskorun um sérstaka stefnumótun varðandi þéttingu byggðar í grónum íbúðahverfum og fyrirhugað deiliskipulag fyrir Háveg, Álftröð og Skólatröð.
Lagt fram og rætt. Skipulagsstjóra falið að taka saman gögn eftir þeirri forskrift sem nú þegar liggur fyrir í svæðis- og aðalskipulagi.
02
Bæjarráð - 2883. fundur
Frá íbúm við Álfhólsveg, Skólatröð, Hátröð, Neðstutröð og Vallartröð, lagt fram bréf um áskorun um sérstaka stefnumótun varðandi þéttingu byggðar í grónum íbúðahverfum og fyrirhugað deiliskipulag fyrir Háveg, Álftröð og Skólatröð.
Lagt fram og vísað til skipulagsráðs til úrvinnslu.