Dalsmári 5. Breiðablik. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi í tilefni Palla balls
Málsnúmer: 1709857
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2884. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 26. september, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 19. september, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um tímabundið áfengisleyfi vegna Pallaballs þann 30. ágúst 2017 frá kl. 20:00-04:00, í íþróttahúsinu Smáranum að Dalsmára 5, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.