Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Ölfus 2010-2022. Breyting á aðalskipulagi. Skipulags- og matslýsing.
Málsnúmer: 1710428
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 17. fundur
Lögð fram skipulags- og matslýsing dags. 11. október 2017, fyrir breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022. Nær breytingin til hafnarsvæðis Þorlákshafnar. Markmið skipulagsvinnunnar er að endurskoða skipulag á hafnarsvæðinu vegna breyttra forsendna og þróunar á hafnarsvæðinu. Skoðuð verður framtíðaraðkoma að hafnarsvæðinu og fyrirkomulag vegakerfis á norðurhluta svæðisins. Einnig verður skoðuð tenging við Þorlákshafnarveg, breytingar á hafnarmannvirkjum og staðsetning frárennslis.
Lagt fram og kynnt.