Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 14, Thorbergssons Apartments. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Málsnúmer: 1710628

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2922. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 28. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 31. október 2017, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fjárfestingafélagsins Sigrúnar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 14, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum.