Álalind 18-20, sala lóðar.
Málsnúmer: 1711253
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1167. fundur
Lögð fram drög að kaupsamningi um fasteignina. Lagt er til að bæjarstjóra verði heimilað að fullgilda kaupsamning og afsal um eignina.
Bæjarstjórn samþykkir drög að kaupsamningi og að fela bæjarstjóra að fullgilda kaupsamning og afsal með sjö atkvæðum þeirra Sverris Óskarssonar, Andra Steins Hilmarssonar, Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson og Guðmundar Geirdal gegn atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar og Kristínar Sævarsdóttur. Birkir Jón Jónsson og Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddu ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2894. fundur
Lögð fram drög að kaupsamningi um fasteignina. Lagt er til að bæjarstjóra verði heimilað að fullgilda kaupsamning og afsal um eignina.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn einu atkvæði Kristínar Sævarsdóttur og hjásetu Birkis Jóns Jónssonar að leggja til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði heimilað að fullgilda kaupsamning og afsal vegna sölu fasteignarinnar.
03
Bæjarráð - 2893. fundur
Lögð fram tilboð vegna sölu á Álalind 18-20.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar að fela bæjarlögmanni að ganga til samninga við hæstbjóðanda Grjótgarða ehf.