Bakkabraut 2-4 og Bryggjuvör 1, 2, 3. Svæði 13. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1711368
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 82. fundur
Lögð fram tillaga Atelier arkitekta fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóða við Bakkabraut 2-4 og Bryggjuvör 1-3 og Þinghólsbraut 77-79. Svæði 13 á þróunarsvæði á Kársnesi ÞR-1. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnuhúsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðamörkum Þinghólsbrautar í austur, að Borgarholtsbraut í norðri, Bakkabraut til vesturs og göngustíg í suðri. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða verði 160, á 2-5 hæðum þar sem 5. hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 1,35 bílastæðum pr. íbúð og að u.þ.b. 90% þeirra verði í innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu verði 18.950 m2 ofanjarðar og 2.800 m2 neðanjarðar (A-rými), 24.730 m2 ofanjarðar og 5.700 m2 neðanjarðar (A og B-rými). Fyrirhugað breytt nýtingarhlutfall á svæðinu er ráðgert 1,77 ofanjarðar og 2,18 ofanjarðar og neðanjarðar samanlagt. Uppdrættir í mælikvarða 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 8. júlí 2020.
Afgreiðslu frestað.
02
Skipulagsráð - 79. fundur
Lögð fram og kynnt hugmynd Atelier arkitekta að endurskipulagningu lóða við Bakkabraut 2-4 og Bryggjuvör 1, 2 og 3. Í hugmyndinni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnuhúsnæði á lóðunum verði fjarlægðar og íbúðarhús byggð í þess stað. Hugmyndin er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum dags. 26. júní 2020.
Björn Skaptason, atkitekt gerir grein fyrir tillögunni.
Skipulagsráð samþykkir að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags á svæði 13.
03
Bæjarráð - 2927. fundur
Á fundi skipulagsráðs 20. nóvember 2017 var lagt fram erindi Vinabyggðar ehf. dags. 13. nóvember 2017 um fyrirkomulag deiliskipulagsvinnu á svæði 13 á þróunarsvæði á Kársnesi. Tillagan gengur út á að skipta ferlinu í tvo áfanga. Í fyrsta áfanga yrði efnt til lokaðrar samkeppni um mögulega útfærslu deiliskipulags á reitnum. Í seinni áfanga yrði endanleg deiliskipulagstillaga unnin.
Á fundi skipulagsráðs 20. ágúst 2018 voru lagðar fram og kynntar hugmyndir fjögurra arkitektastofa að mögulegri útfærslu byggðar á reit 13 frá: ARKÍS; Teiknistofunni Tröð; Zeppelin arkitektum og Atelier arkitektum.
Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Vinabyggðar gerir grein fyrir tillögunum.
Lögð fram að nýju hugmynd Atelier arkitekta að mögulegri útfærslu byggðar á reit 13. Björn Skaptason arkitekt og Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Vinabyggðar mæta á fundinn og gera grein fyrir hugmyndinni.
04
Skipulagsráð - 34. fundur

Lagt fram og kynnt.
05
Skipulagsráð - 32. fundur

Lagðar fram og kynntar hugmyndir fjögurra arkitektastofa að mögulegri útfærslu byggðar á reit 13 frá: ARKÍS; Teiknistofunni Tröð; Zeppelin arkitektum og Atelier arkitektum.
Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Vinabyggða gerir grein fyrir tillögunum.
Lagt fram og kynnt.
06
Skipulagsráð - 18. fundur
Lagt fram erindi Vinabyggðar ehf. dags. 13. nóvember 2017 um fyrirkomulag deiliskipulagsvinnu á svæði 13 á þróunarsvæði á Kársnesi. Tillagan gengur út á að skipta ferlinu í tvo áfanga á þann hátt að í fyrsta áfanga yrði efnt til lokaðrar samkeppni og tillaga valin í samráði við skipulagsráð Kópavogsbæjar. Í seinni áfanga yrði endanleg deiliskipulagstillaga unnin.
Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Vinabyggða gerir grein fyrir erindinu.
Lagt fram og kynnt.