Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Glósalir 7 - Fækkun á hraðahindrunum

Málsnúmer: 1711664

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 101. fundur

Umhverfis- og samgöngunefnd - 94 (19.12.2017) - Glósalir 7 - Fækkun á hraðahindrunum

Lagt fram erindi Önnu Sigurbjargar Finnsdóttur varðandi beiðni á fækkun á hraðahindrunum á leið frá Glósölum að Salavegi dags. 27.11.2017.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að gera úttekt á umræddum kafla og skila minnisblaði.

Frá deildarstjóra Gatnadeildar lagt fram minnisblað varðandi úttekt á umræddum kafla og fækkun hraðahindruna dags. 20. september 2018.

Hafnað. Í ljósi umferðarmagns sem eru 3.000 til 3.300 bifreiðar á sólahring og umferðarhraða sem er algengastur á bilinu 60-70 km hraða á klst. og næst algengasti umferðarhraði sem er á bilinu 70-80 km á klst. Þá er það mat Umhverfis- og samgöngunefndar að ekki sé forsenda til að fækka hraðahindrunum á Salavegi eða á milli gatnamóta Salavegar/Fífuhvammsvegar og Glósala.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 94. fundur