Til baka í fundargerðir
Digranesvegur 63, íbúðir. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstarleyfi
Málsnúmer: 1712097
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2919. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 15. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12. desember 2017, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Bjarna Stefáns Konráðssonar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Digranesvegi 63, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð hafnar umsókninni fyrir sitt leyti með vísan til framlagðrar umsagnar með fimm atkvæðum.