Versalir 3, Versalir íþróttahús. Íþróttafélagið Gerpla. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer: 1801561
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2904. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 19. febrúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23. janúar þar sem óskað er umsagna um umsókn Íþróttafélagsins Gerplu, kt. 700672-0429, um tímabundið áfengisleyfi vegna konukvölds Gerplu þann 24. febrúar 2018, frá kl. 19:00 til kl. 04:00, í íþróttahúsinu Versölum, að Versölum 3, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitastjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.