Dalsmári 5, íþróttahúsið Smárinn. Breiðablik. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer: 1801696
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2901. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 29. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. janúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar sem verður þann 3. febrúar 2018 frá kl. 18:30-02:00, í íþróttahúsinu Smáranum að Dalsmára 5, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.