Strætó leitar heimildar vegna lántöku
Málsnúmer: 1801698
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1170. fundur
Frá fjármálastjóra, lögð fram umsögn er varðar erindi Strætó bs. vegna heimildar til lántöku.
Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir með 11 atkvæðum að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Strætó bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.000.000.000,- til allt að 38 ára, í samræmi við lánstilboð frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Strætó bs. Kópavogsbær veitir lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til uppgjörs til Brú lífeyrissjóðs vegna lífeyrisskuldbindinga, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Kópavogs skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Strætó bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta Strætó bs., sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Kópavogsbær selji eignarhlut sinn í Strætó bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Kópavogsbær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogsbæjar kt. 170766-5049, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Kópavogsæjar veitingu ofangreindrar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
02
Bæjarráð - 2902. fundur
Frá fjármálastjóra, lögð fram umsögn er varðar erindi Strætó bs. vegna heimildar til lántöku.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
03
Bæjarráð - 2901. fundur
Frá Strætó bs., dags. 26. janúar, lagt fram erindi varðandi heimild til lántöku.
Bæjarráð vísar erindu til umsagnar til fjármálastjóra.