Til baka í fundargerðir
Vetrarhátíð, Safna- og Sundlauganótt 2018
Málsnúmer: 1801734
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 84. fundur
Dagskrá Vetrarhátíðar 2018 í Kópavogi
Lista- og menningarráð lýsir yfir mikilli ánægju með fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá Menningarhúsanna og Sundlaugar Kópavogs. Sérstaklega ber að fagna nýrri lýsingu framan á Menningarhúsin sem er mikil lyftistöng fyrir svæðið og menningarstarfið í heild sinni. Framlag bæjarlistamanns er einnig afar mikilvægt og er honum þakkað veigamikið framlag til hátíðarinnar.