Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smáralind. Fjölgun yfirbyggðra bílastæða norðan Smáralindar.

Málsnúmer: 1801747

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 24. fundur

Lagt fram erindi Regins fh. lóðarhafa Hagasmára 1 dags. 29. janúar 2018 að breyttu deiliskipulagi.

Skipulagssvæðið nær til svæðis rétt austan við bensín afgreiðslu stöðvar N1 og nánar til tekið afmarkast svæðið af efri bílastæða palli norðan Smáralindar til austurs.

Í tillögunni felst að stækka lóðina til norðurs og koma fyrir nýjum bílastæðum á tveimur pöllum í framhaldi af þeim bílastæðum sem liggja norðaustan verslunarmiðstöðvarinnar. Gert er ráð fyrir að bílstæðum á deiliskipulagssvæðinu fjölgi úr 90 stæðum sem fyrir eru á jarðhæð um 654 stæði og verða samtals 744 stæði. Sett verður kvöð innan lóðar um graftarréttindi vegan lagna.

Lagt fram.