Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hamraborg 7, Comfort Apartments. Eldsalir ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer: 1801784

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2919. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 19. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 31. janúar 2018, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Eldsala ehf. um endurnýjað rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Hamraborg 7, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til framlagðrar umsagnar með fimm atkvæðum.