Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hamraborg 10. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Málsnúmer: 1802075

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2913. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 12. mars, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Kvenfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 244.800,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum styrk að upphæð kr. 244.800,-. til greiðslu fasteignaskatts á fasteign Kvenfélags Kópavogs.

02

Bæjarráð - 2908. fundur

Lögð fram umsókn Kvenfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.