Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samantekt á ábendingum varðandi umferðaröryggi við grunnskóla. Tillaga frá bæjarfulltrúum Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks.

Málsnúmer: 1802119

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2903. fundur

Tillaga frá bæjarfulltrúum Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks, þar sem óskað er eftir að skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs vinni samantekt á ábendingum varðandi umferðaröryggi við grunnskóla Kópavogs sem bárust á samráðsfundunum í tengslum við gerð samgöngustefnu sem nú er í vinnslu. Samantektin verði send til umsagnar grunnskólayfirvalda og í framhaldinu vinni deildin aðgerðaráætlun með tillögu að útbótum í samvinnu við umferðarsérfræðinga.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.