Til baka í fundargerðir
Tillaga að breytingu á úthlutunarreglum lóða varðandi flokkun sorps á byggingarstað.
Málsnúmer: 1802693
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 100. fundur
Á fundi skipulagsráðs 19. febrúar 2018, undir liðnum önnur mál, var samþykkt erindi Guðmundar Gísla Geirdal þar sem hann lagði til að við úthlutun lóða í Kópavogi verði gerð krafa um flokkun sorps á byggingarstað. Anna María Bjarnadóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Ása Richardsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson, Júlíus Hafstein og Hreggviður Norðdahl tóku undir með Guðmundi.
Vísað til skipulags- og byggingardeildar til afgreiðslu.