Til baka í fundargerðir
Siðareglur kjörinna fulltrúa. Frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur.
Málsnúmer: 18031104
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 26. fundur
Í siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ 4. gr. er kveðið á um að kjörnir fulltrúar komi fram af háttsemi. Það er óásættanlegt að kjörinn fulltrúi í skipulagsráði komist upp með ærumeiðandi ummæli um annan kjörinn fulltrúa um upplag og innræti fulltrúans, þegar verið er að ræða um málefni. Ég óska eftir því að forsætisnefnd skoði háttsemi nefndarmannsins með hliðsjón af siðareglum og greinina um háttsemi.