Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Félagslegar leiguíbúðir og gæludýrahald

Málsnúmer: 18031300

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1177. fundur

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingu á reglum um gæludýrahald í félagslegum íbúðum.

02

Bæjarráð - 2914. fundur

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

03

Velferðarráð - 28. fundur

Velferðarráð samþykkir tillögu Kristínar Sævarsdóttur um breytingar á reglum um gæludýrahald í félagslegum íbúðum sem lögð var fram þann 9. apríl sl. Tillagan er um að leyfilegt verði að halda hund eða kött í félagslegum íbúðum í eigu Kópavogsbæjar. Leyfið verði háð eftirfarandi skilyrðum:

a)Sé um sameiginlegan inngang að ræða er hunda- og kattahald háð samþykki 2/ 3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. (skv lögum um fjöleignarhús og reglum um katta- og hundahald í Kópavogi).

b)Hunda- og kattahald í félagslegum íbúðum með sérinngangi er leyfilegt.



04

Velferðarráð - 27. fundur

Vegna fyrirspurnar fundarmanns. Kristín Sævarsdóttir leggur fram tillögu um breytingar á reglum gæludýrahalds í félagslegum íbúðum.

Tillagan er eftirfarandi:

"Leyfilegt verði að halda hunda eða ketti í félagslegum íbúðum í eigu Kópavogsbæjar. Leyfið verði háð eftirfarandi skilyrðum:

a) Sé um sameiginlegan inngang að ræða er hunda- og kattahald háð samþykki 2/ 3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. (skv lögum um fjöleignarhús og reglum um katta- og hundahald í Kópavogi).

b)Hunda- og kattahald í félagslegum íbúðum með sérinngangi er leyfilegt." Kristín Sævarsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar.

Velferðarráð frestar tillögunni og óskar eftir umsögn um gæludýrahald frá eignardeild umhverfissviðs bæjarins.