Til baka í fundargerðir
Dalsmári 5, Fífan. Kópavogsbær. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyf vegna árshátíðar
Málsnúmer: 1803586
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2906. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 6. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kópavogsbæjar, kt. 700169-3759, um tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar Kópavogsbæjar þann 14. apríl 2018, frá kl. 18:00-02:00, í Fífunni knattspyrnuhöll, Dalsmára 5, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/20017 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.