Óskað eftir kortlagningu á tillögu að uppbyggingu leiðarkerfis almenningssamgangna Strætó bs. í Kópavogi frá Hjördísi Ýr Johnson
Málsnúmer: 1803861
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 98. fundur
Formaður umhverfis- og samgöngunefndar óskar eftir kortlagningu á tillögu að uppbyggingu leiðarkerfis almenningssamgangna Strætó bs. í Kópavogi með það að leiðarljósi að stytta bið- og ferðatíma íbúa með bættri þjónustu og góðri tengingu við nágranna sveitafélög. Stuttri greinagerð um rökstuðning leiðarvals og tillagna á breytingu fylgi.
Formaður þakkar framlögð gögn.
Lagt fram og kynnt.
Andri Steinn Hilmarsson bókar að það sé mjög brýnt að smiði brúar yfir Fossvog verði lokið hið fyrsta og verði opin fyrir almenningsvagna.
Um er að ræða mikið framfaramál í almenningssamgöngum í Kópavogi.
Hjórdís Ýr Johnson tekur undir bókun Andra Steins Hilmarssonar.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 97. fundur