Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lyngbrekka 15, Hótel framtíð ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstarleyfi gististaðar í fl.II

Málsnúmer: 1804420

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2917. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 28. maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16. apríl, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Hótel Framtíðar ehf., kt. 471188-1829, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Lyngbrekku 15, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð hafnar umsókninni fyrir sitt leyti með vísan til framlagðrar umsagnar með fimm atkvæðum.