Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um að halda blaklandsleiki í Digranesi

Málsnúmer: 1804443

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 82. fundur

Lagt fram erindi frá Blaksambandi Íslands (BLÍ), dags. 12. apríl sl., þar sem BLÍ óskar eftir því að komast að í viðburðahúsið Digranes, vera með landsleiki og úrslitahelgi í Kjörísbikarnum til næstu þriggja ára með von um framlengingu.

Íþróttaráð lítur jákvætt á erindið og felur starfsmönnum að kanna hvort og þá hvernig aukin afnot BLÍ á Digranesi geti samræmst þeirri starfsemi sem fyrir er í húsinu nú þegar svo sem með tillit til æfingatíma barna og unglinga.