Ársalir 1. Ósk um kaup á íbúð
Málsnúmer: 1804687
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2924. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi f.h. Húsnæðisnefndar Kópavogs um heimild til að selja félagslegt húsnæði að Ársölum 1 til núverandi leigjanda þess.
Samþykkt með 5 atkvæðum, enda verði keypt önnur íbúð.
Bókun frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, Einari Þorvarðarsyni, bæjarfulltrúa BF Viðreisnar, og Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, bæjarfulltrúa Pírata:
"Undirrituð árétta að samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar um sölu á félagslegum íbúðum ber Kópavogsbæ að kaupa aðra sambærilega íbúð í stað þeirrar sem seld er. Eðlilegt er að ekki líði lengri tími en 2 mánuðir frá sölu þar til önnur íbúð hefur verið keypt. Óskað er eftir að bæjarráð fái upplýsingar um það húsnæði sem keypt verður í stað þess sem selt er nú.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Þorvarðarson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir."