Til baka í fundargerðir
Hestheimar 14-16, Sprettur Rekstrarfélag. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1804731
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2922. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 28. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 27. apríl 2018, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Spretts rekstrarfélags um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hestheimum 14-16, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum.