Fyrirspurn um reglur vegna framkvæmda við Tennishöllina, óskað eftir að tryggt sé að vinnuvélar séu ekki á þeim tíma sem börn eru að fara í og úr skóla. Fá Margréti Júlíu Rafnsdóttur
Málsnúmer: 1804765
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2913. fundur
Frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur, bæjarfulltrúa :
"Ég óska eftir upplýsingum um verklagsreglur sem vektaka er gert að fara eftir vegna framkvæmda við Tennishöllina í Kópavogsdal. Ég óska eftir að settar verði skýrar reglur um að ekki séu vinnuvélar á ferð á þeim tíma sem börn eru á leið til og frá skóla til að tryggja öryggi þeirra sem best, frá 7:40 - a.m.k. 9:00 á morgnana og þegar skóla lýkur. Reglunum þarf að framfylgja."
Greinargerð: Mikilvægt er að fyllsta öryggis sé gætt á gönguleiðum barna til og frá skóla. Foreldrar barna í Smáraskóla hafa verulegar áhyggjur af öryggi barna sinna vegna umferðar stórra vinnuvéla þvert á leið barnanna þegar þau eru á leið í skóla á morgnanna.
Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Mikilvægt er að verktakar vakti svæðið þegar vinnuvélarnar eru á ferð til að tryggja öryggi barnanna sem best.
Margrét Júlía Rafnsdóttir"