Til baka í fundargerðir
Nýbýlavegur 4, Tokyo Sushi. Tokyo veitingar ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 18051483
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2922. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 20. júlí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 31. maí 2018, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tokyo veitinga ehf. um endurnýjað rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 4, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum.