Fundarsalur bæjarstjórnar og vinnuaðstaða bæjarfulltrúa. Breytingar að Hábraut 2.
Málsnúmer: 18061080
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 186. fundur
Breytingar á bæjarstjórnarsalnum kynntar, ásamt kostnaðaráætlun.
Forsætisnefnd felur bæjarritara að kynna tillögurnar fyrir bæjarfulltrúum.
02
Forsætisnefnd - 169. fundur
Umræður um vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa að Hábraut 2.
Umræður.
03
Bæjarráð - 3009. fundur
Frá sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 14. júlí 2020, lögð fram tillaga um endurnýjun á tæknibúnaði í bæjarstjórnarsal, ásamt viðauka.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum, ásamt viðauka, með fimm atkvæðum.
04
Bæjarráð - 2922. fundur
Frá bæjarritara, tillaga arkitekts (merkt T5) að innra skipulagi að Hábraut 2. Tillagan sýnir fundarsal bæjarstjórnar og vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa.
05
Bæjarráð - 2922. fundur
Frá bæjarritara, tillaga arkitekts (merkt T5) að innra skipulagi að Hábraut 2. Tillagan sýnir fundarsal bæjarstjórnar og vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa.
06
Bæjarráð - 2922. fundur
Frá bæjarritara, tillaga arkitekts (merkt T5) að innra skipulagi að Hábraut 2. Tillagan sýnir fundarsal bæjarstjórnar og vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að innréttuð verði tvö fundarherbergi í bæjarstjórnarsal að Hábraut 2. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni. Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Engin þarfagreining hefur farið fram í samráði við bæjarfulltrúa (á starfsaðstöðu bæjarfulltrúa) í undirbúningi á þessari vinnu. Að fara í framkvæmdir upp á verulegar fjárhæðir á þessum forsendum tel ég ekki góð vinnubrögð og ekki góða ráðstöfun á opinberu fjármagni.
Theódóra Þorsteinsdóttir"
Hlé var gert á fundi kl. 9:17. Fundi var fram haldið kl. 9:47.
Fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Þessi starfsaðstaða tekur mið af aðstöðu bæjarstjórnar sem var í Fannborg 2 þar sem fyrir voru tvö fundarherbergi ætluð meiri- og minnihluta. Leitast er eftir eins hagkvæmri lausn og mögulegt er við þessar breytingar.
Birkir Jón Jónsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson"
Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Engin ákvörðun liggur fyrir um það hvort húsnæðið við Hábraut 2 verði notað sem bæjarstjórnarhús til framtíðar. Þegar sú ákvörðun liggur fyrir þá finnst mér eðlilegt að fara í framkvæmdir, annað er sóun á fjármagni því verulegar líkur eru á að fjarlægja þurfi fyrirhuguð fundarherbergi þegar endanleg ákvörðun liggur fyrir.
Theódóra Þorsteinsdóttir"
07
Bæjarráð - 2921. fundur
Frá bæjarritara, tillaga arkitekts að innra skipulagi að Hábraut 2. Tillagan sýnir fundarsal bæjarstjórnar og vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa.
Forsætisnefnd samþykkti tillögu merkt T5 fyrir sitt leyti og vísaði henni til bæjarráðs á fundi sínum, 29.júní sl. Jafnframt lagðar fram útfærslur nr. T6 og T7.
Jafnframt óskaði forsætisnefnd eftir kostnaðarmati umhverfissvið og liggur það fyrir.
Hlé var gert á fundi kl. 9:05. Fundi var fram haldið kl. 9:25.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra stjórnsýslu- og umhverfissviðs til úrvinnslu.
08
Forsætisnefnd - 119. fundur
Frá bæjarritara, tillaga arkitekts (merkt T5) að innra skipulagi að Hábraut 2. Tillagan sýnir fundarsal bæjarstjórnar og vinnuaðstöðu bæjarfulltrúa.
Forsætisnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs. Jafnframt óskar forsætisnefnd eftir kostnaðarmati umhverfissviðs, sem liggi fyrir á næsta fundi bæjarráðs.