Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Velferð á vinnustað

Málsnúmer: 1806800

Ferill máls

01

Menntaráð - 105. fundur

Kynning á veikindatíðni og verkefninu Velferð á vinnustað þar sem markmiðið er að styðja við starfsfólk og stjórnendur vegna veikinda.

Sindri Sveinsson, rekstrarstjóri menntasviðs fór yfir veikindatíðni í stofnunum menntasviðs. Ingunn Mjöll Birgisdóttir og Arna Margrét Erlingsdóttir, verkefnastjórar á menntasviði kynntu verkefnið Velferð á vinnustað.

Sigvaldi Egill Lárusson, Jónas Haukur Thors Einarsson, Hanna Carla Jóhannsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sigrún Hulda Jónsdóttir, fulltrúi framsóknarflokks, Donata H. Bukowska, fulltrúi Samfylkingar og Þórarinn Ævarsson fulltrúi Vina Kópavogs, lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Nauðsynlegt er að vera stöðugt að leita leiða til að einfalda og straumlínulaga verkferla. Núverandi fyrirkomulag tímaskráningakerfisins Vinnustundar er ansi þungt og vinnufrekt. Menntaráð felur menntasviði að vinna að einföldun á tímaskráningum starfsmanna í skólum Kópavogs með það að markmiði að einfalda og straumlínulaga ferli skráningar án þess þó að missa skráningu á yfirvinnu og veikindum. Lagt er upp með að nýtt ferli verð kynnt fyrir menntaráði fyrir sumarfrí 2023 og unnt verði að hefja vinnu eftir því á skólaárinu 2023-2024"

02

Bæjarráð - 3085. fundur

Kynning á verkefninu velferð á vinnustað.

Kynning.

Bókun bæjarráðs:

"Bæjarráð þakkar góða kynningu og fagnar þessu mikilvæga verkefni til hagsbóta fyrir starfsfólk og Kópavogsbæ."