Til baka í fundargerðir
Smiðjuvegur 14, Sportakademían ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1807071
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2924. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 10. ágúst, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 5. júlí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Sportakademíunnar ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki III, að Smiðjuvegi 14, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.