Beiðni um styrk vegna þátttöku Sindra Hrafns Guðmundssonar spjótkastara á Evrópumótinu í Berlín í sumar
Málsnúmer: 1807238
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 84. fundur
Lagt fram erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, dags. 17. júlí sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku Sindra Hrafns Guðmundssonar spjótkastara í Evrópumeistaramótinu í Berlín í lok júlí sl.
Kópavogsbær og Samstarfsvettvangur íþróttafélaga í Kópavogi (SÍK) undirrituðu samstarfssamning um að efla samstarf milli bæjaryfirvalda og íþróttahreyfingarinnar í Kópavogi. Í samningi þessum stendur í 3.grein, "Með samningi þessum fær SÍK forræði yfir ráðstöfun þeirra fjármuna sem bæjaryfirvöld úthluta til starfsstengdra verkefna íþróttafélaganna í bænum, samþykkt við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar ár hvert." Þar á meðal er eru fjármunir sem varið hefur verið til iðkendastyrkja, sérstyrkja sem og árangurs- og afreksstyrkja sl. ár.
Íþróttaráð vísar erindinu til stjórnar SÍK til afgreiðslu.