Til baka í fundargerðir
Hafnarbraut 12/ Kársnesbraut 104. Samkomulag um greiðslufyrirkomulag vegna framkvæmda á lóðunum
Málsnúmer: 18081209
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2924. fundur
Frá lögfræðideild, lögð fram til samþykktar drög að samkomulagi um greiðslufyrirkomulag vegna framkvæmda á lóðarmörkum Hafnarbrautar 12 og Kársnesbrautar 104.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samkomulagi með fjórum atkvæðum, Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar sat hjá.
Lögð fram bókun frá Pétri Hrafn Sigurðssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingar.
"Þar sem í gögnum málsins kemur hvergi fram hver upphæðin sem Kópavogsbær þarf að greiða vill undirritaður taka fram að upphæðin er 27,5 milljónir króna.
Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar."
Bókun frá meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
"Upphæðin kom fram í samkomulagi sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 26. júlí."