Til baka í fundargerðir
Nýbýlavegur 14, íbúð 301, fnr. 206-4406, Thorbergsson apartments. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi f. gististað í fl. II
Málsnúmer: 18081736
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2925. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 24. ágúst, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 31. október 2017, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fjárfestingafélagsins Sigrúnar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 14, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.