Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Staða mála varðandi uppkaup JÁ verks á eignum á Kópavogshæð

Málsnúmer: 1808765

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 32. fundur

Erindi frá Bergljótu Kristinsdóttur bæjarfulltrúa.

Óskað er eftir upplýsingum og umræðum á næsta Skipulagsráðfundi um stöðu mála varðandi uppkaup JÁ verks á eignum á Kópavogshæð á milli Skólatraðar, Hávegs og Álfstraðar.

Hafa farið fram viðræður milli Kópavogsbæjar og eiganda um hugmyndir að framtíðarskipulagi á reitunum og ef svo er óska ég eftir að þær hugmyndir verði kynntar Skipulagsráði sem fyrst. Bæjarbúar og eigendur eigna í nágrenni svæðisins bíða eftir upplýsingum um tilvonandi skipulag og framkvæmdir og bæjarfulltrúar þurfa að hafa einhver svör.