Óskað eftir samþykki sveitastjórnar fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Málsnúmer: 1809452
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 36. fundur
Frá SORPU bs., dags. 12. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samþykki sveitastjórnar fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
02
Bæjarstjórn - 1182. fundur
Frá SORPU bs., dags. 12. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samþykki sveitastjórnar fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Ákvörðun um að veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánsamningi vegna láns Sorpu bs. frá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með 11 atkvæðum að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 750.000.000,- (sjöhundruðogfimmtíumilljónir), með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt. 170766-5049, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
03
Bæjarráð - 2928. fundur
Frá SORPU bs., dags. 12. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samþykki sveitastjórnar fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.