Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn um mönnun og þjónustugetu
Málsnúmer: 1809559
Ferill máls
01
Velferðarráð - 34. fundur
Svar við fyrirspurn sem lögð var fram á fundi velferðarráðs þann 10. september 2018
Lagt fram.
Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun: "Ég þakka ítarleg svör um starfsaðstæður og starfsumhverfi starfsfólks í ráðgjafa- og íbúðadeild. Nauðsynlegt er að starfsumhverfi starfsfólksins sé með þeim hætti að hægt sé að inna af hendi þau verkefni sem heyra undir starfssvið þeirra. Það er mikilvægt að starfsfólk geti sinnt skyldum sínum með fullnægjandi hætti og því ber að hlúa vel að starfsumhverfi þessa starfsfólks og vera viðbúin sveiflum í þörfum þjónustuþega."