Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá íbúum við Fagrahjalla og Fífuhjalla

Málsnúmer: 1810008

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 104. fundur

Lagt fram erindi Rakelar Ýrar Ísaksen fyrir hönd íbúa við Fagrahjalla og Fífuhjalla varðandi beiðni um að opna fyrir akstur frá bílastæði við Fífuhjalla 2 og 6 út á Fífuhjalla dags. 14. maí 2018.

Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar framlögðu erindi um að bæta við aðkomu til og frá lóð Fagrajalla 2-20 inn á Fífuhjalla. Núverandi aðkoma til og frá lóð Fagrahjalla 2-20 liggur um Fagrahjalla samkvæmt umferðaröryggisáætlun Kópavogsbæjar 2012 líkt og lóðir Fagrahjalla 22-40 og Fagrahjalla 42-60 sökum umferðaröryggis. Ósk um tengingu inn á Fífuhjalla frá lóð Fagrahjalla 2-20 er nærri gatnamótum við Hlíðarhjalla og umferð inn á Fífuhjalla er talin draga úr umferðaröryggi.